Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2013 | 11:00

Stenson með lægsta hring ferilsins

Henrik Stenson átti í gær lægsta skor á ferli sínum 8 undir pari, 63 högg.

Á hringnum missti Stenson hvergi högg, fékk 8 fugla og 10 pör.

Glæsiskorið kom honum upp í 2. sætið á Deutsche Bank Championship á TPC Boston.

„Ég er farinn að ganga á varabatteríin og náði mér þar að auki í kvef fyrir nokkrum dögum,“ sagði Stenson, sem líkt og aðrir stjörnukylfingar er orðinn ansi „veðraður“ á þessum árstíma, þreyttur og búinn að ganga fram af sér.

„Ég hélt að ég myndi ekki fá mikið úr þessu móti, en varið ykkur bara á þessum veika og meidda kylfingi!!!“

„Ég hef sagt það svo oft s.l. tvo mánuði. Þetta er 3 og 1/2 daga maraþon til þess að fá að vera á seinni 9 á lokahringnum.  Það er ekkert öðruvísi í þessari viku.  Þetta er það sem við erum að reyna að gera.“