Stenson gerir samning við Greens Plus
Golfstjarnan sænska, Henrik Stenson, sem átti eitt besta keppnistímabil ferils síns á síðasta ári þar sem hann varð m.a. efstur á peningalistum beggja vegna Atlantsála, heldur áfram að græða á ábatasömum styrktar- og auglýsingasamingum.
Hann hefir nú gert samning við Orange Peel Enterprises, betur þekkt sem Greens Plus og kemur Greens Plus nú inn sem sterkur nýr styrktaraðili Stenson.
Meðal þess sem Stenson samþykkir að gera skv. nýja styrktarsamningnum er að auglýsa vörur Greens Plus og taka þátt í allskyns uppákomum sem snúa að neytendum merkisins.
Stenson sagði m.a. eftir undirritun samnings: „Greens Plus próteinstangir hafa verið hluti af rútínu minni innan og utan vallar í mörg ár og ég er mjög ánægður með að hafa nú formlegt samband við Greens Plus. Að viðhalda orku sinni á golfhring er mikilvægt til að ná árangri. Fyrir hvern hring geng ég úr skugga um að ég sé með golfbolta, tí og Greens Plus í golfpokanum mínum!“
Ryan Deauville, forseti Greens Plus: „Við erum mjög hrifin af því að vera með Henrik um borð. Hann er frábær fulltrúi Greens Plus lístílsins.“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

