Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 12. 2016 | 07:15

Stelpugolf mánud. 16. maí 2016

Margt áhugavert verður í boði á æfingasvæði GKG mánudaginn 16. maí n.k. en þann dag er Stelpugolf.

Stelpugolf hefur fest sig í sessi sem eitt af vorverkefnum golfhreyfingarinnar en dagurinn er verkefni PGA á Íslandi og Golfsambands Íslands. Markmiðið er að stuðla að aukinni þátttöku kvenna í golfi og auka fjölskylduímynd golfíþróttarinnar. Að sjálfsögðu geta þó fjölskyldumeðlimir af báðum kynjum komið á Stelpugolf og tekið þátt í skemmtilegum þrautum og leikjum – pútt, vipp, pitch og teighögg. Gestir sem mæta fá tækifæri til að fara í gegnum mismunandi stöðvar á æfingasvæði GKG þar sem verða til staðar þaulæfðir PGA golfkennarar sem leiðbeina. Einnig verður æfingahringur og þrautir í SNAG golfi.

Á undanförnum árum hafa mörg hundruð kvenna nýtt sér þetta tækifæri og í fyrra er talið að um 800 konur hafi mætt á svæðið og hvetjum við alla til að bjóða vinkonum, mömmum, ömmum systrum, frænkum, saumaklúbbum o.s.frv. með sér í golf. Það verða kylfur á staðnum og frí golfkennsla – það þarf bara að mæta!“ segir Andrea.

Stelpugolf 2016 fer fram mánudaginn 16. maí og verður að venju á æfingasvæði Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar.

Stelpugolfdagurinn er samvinnuverkefni PGA á Íslandi, GSÍ, GKG, ZO•ON, Icelandair Cargo, Íslandsbanka og Eimskips.

Nánari upplýsingar um viðburðinn er að finna á facebook/stelpugolf