Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2019 | 20:00

Spennandi keppnistímabil framundan hjá Valdísi Þóru á LET Evrópumótaröðinni

Valdís Þóra Jónsdóttir, úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, hefur keppnistímabilið á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í næstu viku.

Fatima Bint Mubarak Ladies Open á LET Evrópumótaröðinni fer fram í Abu Dhabi dagana 10.-12. janúar.

Keppnisdagskrá LET Evrópumótaraðarinnar 2019 liggur nú fyrir og er hægt að nálgast allar upplýsingar um mót ársins með því að SMELLA HÉR:

Fatima Bint Mubarak Ladies Open verður jafnframt fyrsta mótið á LET Evrópumótaröðinni þar sem leikið er eftir nýjum golfreglum sem tóku gildi í byrjun þessa árs.

Eftir mótið í Abu Dhabi tekur við keppnistörn í Ástralíu þar sem að þrjú mót fara fram í lok febrúar og byrjun mars. Valdís Þóra á góðar minningar frá Ástralíu en þar náði hún sínum besta árangri fyrir ári síðan – með því að enda í þriðja sæti. Þar jafnaði hún sinn besta árangur á LET Evrópumótaröðinni og er það besti árangur sem íslenskur kylfingur hefur náð á mótaröð í efsta styrkleikaflokki á atvinnumótaröð.

Eftir törnina í Ástralíu verður haldið til Suður-Afríku þar sem keppt verður um miðjan marsmánuð.
Í byrjun apríl verður nýtt keppnisfyrirkomulag á móti sem fram fer í Jórdaníu. Þar keppa konur og karlar um verðlaunaféð og sigurinn í mótinu. Þar mæta til leiks kylfingar frá LET Evrópumótaröðinni og einnig karlkylfingar frá Áskorendamótaröð Evrópu og Staysure mótaröðinni sem er mótaröð eldri kylfinga. Þar verður boðið upp á nýjungar í keppnishaldi og þar á meðal er liðakeppni.

Í lok apríl verður sameiginlegt mót hjá LET Evrópumótaröðinni og Evrópumótaröð karla í Marokkó.
Í byrjun maí verður mót í Dubaí og þar verður m.a. keppt eftir að sólin sest en á Emirates Golf Club eru flóðljós til staðar sem lýsa upp völlinn í myrkrinu. Er þetta í fyrsta sinn sem slíkt verður reynt á LET Evrópumótaröðinni.

Fjölmörg mót fara fram í Evrópu þegar hitastigið hækkar í álfunni á vormánuðum.
Eitt mót fer fram í Taílandi um miðjan júní og í október verður leikið á Indlandi.
Lokakafli LET Evrópumótaraðarinnar fer fram á Spáni í lok nóvember.
Hægt er að nálgast allar upplýsingar um mót ársins með því að SMELLA HÉR:

Heimild: GSÍ