Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 15. 2013 | 17:45

Solheim Cup hefst í kvöld

Solheim Cup hefst í kvöld en keppnin sem er á milli liða Evrópu og Bandaríkjanna er sambærileg Ryder Cup hjá körlunum.  Leikið er í Parker, Colorado að þessu sinni þ.e. þær bandarísku á heimavelli.

Lið Bandaríkjanna þykir sigurstranglegra í ár; enda hefir liði Evrópu aldrei tekist að sigra þær bandarísku á heimavelli.  Firnasterkir kylfingar eru þó í báðum liðum: Stacy Lewis fyrir Bandaríkin og Suzann Pettersen f.h. Evrópu þar fremstar í flokki, enda hæst skrifaðar á Rolex-heimslistanum; Stacy er nr. 2 og Suzann nr. 3.

Liðin eru skipuð eftirfarandi leikmönnum:

Lið Evrópu: 

Liselotte Neumann er fyrirliði og Annika Sörenstam og Carin Koch aðstoðarfyrirliðar.

Leikmenn:

Suzann Pettersen, Noregi.

Carlota Ciganda, Spáni.
Catriona Matthew, Skotlandi.
Caroline Masson, Þýskalandi.
Beatriz Recari, Spáni.
Anna Nordqvist, Svíþjóð.
Karine Icher, Frakklandi.
Azahara Munoz, Spáni.
Caroline Hedwall, Svíþjóð.
Jodi Ewart-Shadoff, Englandi.
Giulia Sergas, Ítalíu.
Charley Hull, Englandi.

Lið Bandaríkjanna:

Meg Mallon er fyrirliði, en aðstoðarfyrirliðar eru þær Dottie Pepper og Laura Diaz.

Leikmenn:

Stacy Lewis

Paula Creamer
Cristie Kerr
Angela Stanford
Brittany Lincicome
Lexi Thompson
Jessica Korda
Brittany Lang
Lizette Salas
Morgan Pressel
Gerina Piller
Michelle Wie