SNAG leiðbeinendanámskeið í Hraunkoti föstudaginn 3. janúar 2015
SNAG þýðir Starting New At Golf og berst nú hratt um heiminn. SNAG hefur aukið möguleika á útbreiðslu golfsins til muna því að með SNAG búnaði og kennslufræði er hægt að gera golfnámið og golfkennsluna skemmtilegri og auðveldari. SNAG golf er hægt að stunda bæði úti og inni og henta íþróttasalir og skólalóðir einstaklega vel fyrir kennsluna.
Æ fleiri kennarar og skólar á mismunandi skólastigum vilja bjóða nemendum sínum að læra undirstöðuatriðin í golfi með SNAG kennslufræðinni í íþróttatímum í bland við aðrar íþróttir eða sem sérstakt valnámskeið. Um 7000 manns hafa kynnst golfinu í gegnum SNAG búnaðinn og eru SNAG leiðbeinendurnir orðnir um 80 talsins frá 30 sveitarfélögum á landinu.
Laugardaginn 3. janúar nk. verður SNAG leiðbeinendanámskeið haldið í Hraunkoti í Keili í Hafnarfirði. Námskeiðið er opið öllu áhugafólki um útbreiðslu golfíþróttarinnar, golfkennurum, íþróttakennurum, þjálfurum og almennum kylfingum. Þeir sem vilja nýta námskeiðið til að auka eigin golfþekkingu eða kynnast nýjum skemmtilegum hlutum í golfheiminum eru velkomnir. Námskeiðið gefur alþjóðleg réttindi á fyrsta stigi SNAG golfkennslu.
Starting New At Golf – Fyrsta stig
Námskeiðið er fyrsti hluti af SNAG kennslu-og þjálfunarkerfinu og veitir réttindi sem fyrsta stigs SNAG golf leiðbeinandi.
Leiðbeinandi: Magnús Birgisson PGA, SNAG Master kennari
Staðsetning: Hraunkot, Golfklúbbnum Keili, Steinholti 1, 220 Hafnarfirði
Tímasetning: Laugardaginn 3. janúar 2015. Kl. 9.00-15.00
Verð: 12.500 fyrir námskeiðið, SNAG handbók, morgun-og hádegishressingu.
Skráning á námskeiðið og nánari upplýsingar veittar í gegnum netfangið ingibjorg@hissa.is og í síma 775-0660 / 898-7250
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
