John Daly er litskrúðugur kylfingur.
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2012 | 17:45

Skapstóru kylfingarnir í golfinu

Skapstóru kylfingarnir í golfinu – hverjir skyldu það nú vera? Með skapstórum kylfingum er hér átt við þá, sem t.d. láta skapið bitna á spilafélögum sínum, en líka hörkutól, sem ekki láta sér allt fyrir brjósti brenna.

Það eru nokkrir á PGA Tour sem eru þekktir af því að vera „skapstórir“ (eru það sem Golf Digest nefnir „Badass“ kylfingar!)

Sem lítið dæmi mætti nefna Rory Sabbatini, en það sem hann á m.a. á ferilsskránni er að hafa arkað á undan spilafélaga sínum, Golf Boys-num, Ben Crane, vegna þess að honum fannst Crane spila allt of hægt! Og það í móti!

Golf Digest hefir tekið saman lista yfir 20 „badass “ kylfinga í golfinu.  Ekki kemur á óvart að finna John Daly þar, sem hefir átt í ótal útistöðum við stjórnendur PGA, m.a vegna reykinga og drykkju og þverbrotum á golfreglunum. Hann tíaði m.a eitt sinn upp af bjórdollu í Pro-Am móti!

Frank Lickliter telst til hinna „slæmu“ en hann er óhemju orðljótur og sparkaði m.a. eitt sinn í rusladall vegna þrípútts.

Best er að skoða „badass“ kylfinganna að mati Golf Digest með því að SMELLA HÉR: