Sigurður Bjarki Blumenstein Sigurður Blumenstein varð T-4 á Opna skoska!!!
Fjórir kylfingar frá Íslandi kepptu á Opna skoska meistaramótinu, sem fram fór á Montrose vellinum, dagana 4. -6. apríl 2018 og lauk því í gær.
Keppendur á þessu móti voru 18 ára og yngri. GR-ingarnir Sigurður Bjarki Blumenstein og Viktor Ingi Einarsson voru í toppbaráttunni fyrir lokahringinn.
Sigurður Bjarki endaði jafn öðrum í 4. sæti, en hann átti góða möguleika á að vinna mótið. Því miður fékk hann fjóra skolla á síðustu fimm holunum og endaði á samtals 8 yfir pari. Sigurvegari mótsins var Patrick Schumecking frá Þýskalandi, en hann lék samtals á 6 yfir pari.
Sigurður Bjarki var á samtals 8 yfir pari, 221 höggi (77 69 75).
Viktor Ingi lauk keppni 9. sæti, á samtals 11 yfir pari, 224 höggum (73 72 79).
Daníel Ísak Steinarsson úr GK var í 30. sæti fyrir lokahringinn. Hann bætti stöðu sína á lokahringnum og endaði í 16. sæti. Hann lék hringina þrjá á 14 yfir pari, 227 höggum (78 73 76).
Ingvar Andri Magnússon, GR komst ekki í gegnum niðurskurð.
Sjá má lokastöðuna á Opna skoska meistaramótinu með því að SMELLA HÉR:
Aðalfréttagluggi: Sigurður Bjarki Blumenstein, GL. Mynd: seth@golf.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
