Ragnheiður Jónsdóttir | september. 23. 2018 | 02:08

Sigrar Tiger í 3. sinn á Tour Championship?

Tiger Woods er efstur á Tour Championship eftir 3. dag mótsins.

Nú þegar aðeins á eftir að spila lokahringinn er spurning hvort Tiger takist að sigra Tour Championship enn á ný, en hann hefir á ferli sínum tvívegis áður sigrað í mótinu?

Tiger hefir sótt sig með hverju mótinu, er í feykiformi og m.a. í Ryder liði Bandaríkjanna sem keppir 30. september n.k. á Le Golf National vellinum í París.

Tiger er búinn að spila á 12 undir pari, 198 höggum (65 68 65) og á 3 högg á þá Rory McIlroy og Justin Rose, sem báðir hafa spilað á samtals 9 undir pari, hvor.

Kyle Stanley og Jon Rahm deila síðan 4. sætinu á 6 undir pari, hvor.

Líklegt verður að telja að einver þessara þriggja Tiger, Rory eða Rosy standi uppi sem sigurvegari síðar í dag – Spennandi sunnudagskvöld framundan 🙂

Sjá má stöðuna á Tour Championship með því að SMELLA HÉR: