Shaq og Bubba í golfi
Körfuboltasnillingurinn Shaquille O´Neal er enginn smásmíð s.s. sést á meðfylgjandi mynd, þar sem hann heldur á Bubba Watson í fanginu eins og tuskudúkku. Shaquille eða Shaq eins og hann er alltaf kallaður er hvorki meira né minna en 2,16 m á hæð og vegur 147 kíló.
Bubba er ekkert lágvaxnasti kylfingurinn á PGA Tour; er 1,91 m á hæð og vegur 82 kíló.
Það sem er þó kannski fyndnast við myndina er „outfit-ið“ sem Shaq er í. Nokkuð óvanalegt að sjá þennan snilling í bleikum golfhnébuxum og grænköflóttri peysu, og sokkum og húfu í stíl svo ekki sé minnst á sexí bleika dúskinn!!! Það mættu fleiri taka Shaq sér til fyrirmyndar úti á velli hvað litadýrð snertir!!!
Það var Shaq sjálfur sem tvítaði myndina af sér og Bubba. Hér er tvítið frá Shaq:
Í lauslegri þýðingu segir Shaq: „Hér er ég að „chilla“ (slappa af) ásamt aðalvininum mínum Bubba Watson og ég er ekki daunillur/þ.e. slæmur í golfi eins og Charles „slappsveifla“ Barkley.“ (Charles Barklay var aðalkeppinauturinn í körfunni í denn og er mikill áhugakylfingur líka – þekktur fyrir mjög svo óhefðbundna sveiflu sína sem sjá má með því að SMELLA HÉR: ). Hér má líka sjá skemmtilegt myndskeið þar sem golfsveiflur Charles Barkley og Michelle Wie eru bornar saman SMELLIÐ HÉR:
Það verður gaman að sjá hvernig Charles „bumswing“ svarar fyrir sig.
Hér er síðan mynd af herlegheitunum (Shaquille O´Neal og Bubba Watson) í fullri stærð:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024


