Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 26. 2017 | 02:00

Sergio Garcia með eitt versta högg sitt! – Myndskeið

Kylfingar kannast flestir við þetta að setja sig í stellingar fyrir að slá hið fullkomna högg aðeins til þess að sjá boltann lenda í þykku röffi eða í vatnshindrun.

Þetta er tilfinning sem atvinnukylfingurinn Sergio Garcia á nú sameiginlega með öllum hinum kylfingunum og fær eflaust meðsluggsarann til þess að líða vel með golfið sitt.

Sergio Garcia sló eitt af verstu höggum sem hægt er að sjá atvinnukylfing slá og virtist síðan kenna gripi kylfu sinnar um.

Hmmmmm ….. árinni kennir …….

Garcia, sem almennt er álitinn meðal heimsins bestu kylfinga horfði síðan langeygur á eftir bolta sínum lenda í vatnshindrun.

Þetta högg Garcia kom á 13. teig Austin Country Club á WGC-Dell Match Play í viðureign gegn Jon Rahm.

Sjá má högg Sergio Garcia á heimsmótinu í holukeppni með því að SMELLA HÉR: