Saga og Ingvar Andri hlutu styrki úr Styrktarsjóði Íslandsbanka og ÍSÍ
Sjóðsstjórn, skipuð þeim Helgu H. Magnúsdóttur, Elsu Nielsen og Kristínu Rós Hákonardóttur fór yfir umsóknir vegna úthlutunar úr Styrktarsjóði Íslandsbanka og ÍSÍ fyrir árið 2016. Umsóknir um styrk voru að þessu sinni 81 talsins og var styrkjum úr sjóðnum úthlutað í gær, 13. desember 2016.
Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti tillögu sjóðsstjórnar vegna úthlutunar ársins 2016. Úthlutunin nemur í heild sinni 2,5 milljónum króna. Styrkurinn skiptist á eftirtaldan hátt milli kylfinganna Sögu, Ingvars Andra og síðan annarra íþróttamanna:
Saga Traustadóttir kylfingur, 250.000. Saga hefur náð góðum árangri á síðastliðnum tímabilum og lækkað forgjöf sína hratt. Á síðasta keppnistímabili sigraði Saga á einu af mótum Eimskipsmótaraðar fullorðinna. Síðustu tvö tímabil hefur hún sigrað Íslandsbankamótaröðina í sínum aldursflokki. Framundan eru ferðir á mót í Bandaríkjunum til að ná sér í verðmæta reynslu.
Ingvar Andri Magnússon kylfingur, 250.000. Ingvar Andri er einn af efnilegustu kylfingum landsins. Hefur hann síðastliðin fjögur ár fagnað stigameistaratitli á Íslandsbankamótaröðinni. Styrkurinn er veittur til að komast á fleiri mót erlendis sem gefa ómetanlega reynslu til lengri tíma litið.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
