Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 20. 2013 | 15:00

Ryder Cup kylfingar senda evrópska Solheim Cup liðinu 2013 kveðjur

Ýmsir í liði Evrópu í Ryder Cup 2013 og aðrir sem tengjast fyrri og verðandi Ryder Cup keppnum voru ekki seinir á að óska Solheim Cup lið Evrópu til hamingju með frábæran árangur og fyrsta sigur nokkurs evrópsks Solheim Cup liðs á bandarískri grundu.

Ian Poulter var meðal þeirra sem jós lofsyrðum á Solheim Cup liðið.was among those to heap praise on the women’s team.  Hann tvítaði m.a. (ath. tvítin eru ekki þýdd til þess að þau haldi meiningu sinni):

„Congrats to the Solheim Cup European team on there impressive victory. Great job girls,“ sagði Poulter á Twitter.

Fyrrum nr. 1 á heimslistanum  Luke Donald bætti við sínum hamingjuóskum, en í tvíti hans sagði : „Congrats to @SolheimCupEuro for retaining the Solheim Cup #OleOleOleOle.“

Colin Montgomerie sem var fyrirliði í Ryder Cup keppninni þegar hún fór fram á Celtic Manor Resort árið 2010 jós hrósi á lið Liselotte Neumann:  „Congratulations @LETgolf @SolheimCupEuro Fantastic win. Well played all of you.“

Justin Rose virtist sérlega hrifinn af frammistöðu löndu sinnar Charley Hull og eins hinnar sænsku Caroline Hedwall en í tvíti hans sagði: „Congrats Ladies! Fantastic @SolheimCup win! Charley Hull take a (bow) curtesy! Caroline Hedwall record 5-0 Nice!!“

Lee Westwood virtist mest hrifinn af Hedwall en í tvíti hans sagði: „Congratulations to the European Ladies Solheim cup team. Well done Caroline Hedwall. 5-0!“

Paul Lawrie, sem í þessari viku hefur titilvörn sína í Johnnie Walker Championship á Gleneagles í Skotlandi, sagði: “Well done European Solheim Cup team – massive victory on American soil for the first time!”