Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2023 | 15:40

Ryder Cup 2023: Fleetwood innsiglar sigur liðs Evrópu!!!

Ryderinn bikarinn er aftur á leið til Evrópu!!!! 🙂 🙂 🙂

Það var Tommy Fleetwood sem innsiglaði sigur liðs Evrópu eftir að hafa tryggt hálfa stigið, sem lið Evrópu þarfnaðist sárlega.  …. og hann gerði gott betur og sigraði í sinni viðureign gegn Rickie Fowler 3&1 og kom liði Evrópu í 15-11.

Justin Thomas var þar áður búinn að vinna Sepp Straka 2&1.

Þar með er Ryder bikarinn aftur á leið til Evrópu eftir háðulegt tap liðs Evrópu í Whistling Straits í Wisconsin, Bandaríkjunum fyrir 2 árum (19-9).

Þetta er 7. sigur liðs Evrópu í röð í Rydernum á heimavelli!!!

Segja má þó að Bandaríkjamenn hafi barist hetjulega í tvímenningnum eftir yfirburði liðs Evrópu mestallan tímann fyrstu 2 keppnisdagana.