Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2023 | 08:00

Ryder Cup 2023: Evrópa 10,5 – Bandaríkin 5,5 e. 2. dag

Bandaríska Ryder Cup liðið náði sér aðeins á strik á laugardeginum eftir skelfilega byrjun í Rydernum.

Fyrir tvímenningsleikina er lið Evrópu þó enn með afgerandi forystu; er með 10,5 vinning gegn 5,5 vinningum bandaríska liðsins.

Aðeins 12 tvímenningsleikir eru eftir í dag, sunnudag og  fjórir vinningar, sem skilja Evrópu frá því að endurheimta Ryder bikarinn og halda áfram þriggja áratuga sigurgöngu sinni á heimavelli.

Laugardagurinn byrjaði svipað og föstudagurinn þar sem Bandaríkjamenn fóru hægt af stað í morgunfjórmenningunum.. Bandaríska liðið var í uppnámi eftir morgunfjórmenningana sérstaklega þar sem eitt sterkasta tvíeyki þeirra Scottie Scheffler og Brooks Koepka tapaði stórt fyrir Norðurlandatvíeykinu Viktor Hovland og Ludvig Åberg 9&7  Mum tapið vera það stærsta í sögu Rydersins.

Rory McIlroy og Tommy Fleetwood unnu 2&1 sigur á þeim  Justin Thomas og Jordan Spieth og  Jon Rahm og Tyrrell Hatton burstuðu Patrick Cantlay og Xander Schauffele 2&1.

Eini ljósi bletturinn fyrir Bandaríkin þennan laugardagsmorgun var 4&2 sigur  Max Homa og Brian Harman, á þeim Sepp Straka og Shane Lowry.

Samandregið var niðurstaðan úr laugardagsfjórmenningunum eftirfarandi:

Lið Evrópu                           Lið Bandaríkjanna           Skor
McIlroy/Fleetwood      Thomas/Spieth                 2 & 1
Hovland/Aberg              Scheffler/Koepka              9 & 7
Lowry/Straka                     Homa/Harman              4 & 2
Rahm/Hatton                 Schauffele/Cantlay            2 & 1

Staðan eftir laugardagsfjórmenningana var því 9,5-2,5  liði Evrópu í vil.

Eftir hádegið í fjórboltanum spýtti lið Bandaríkjanna í lófanna og hlaut 3 af 4 mögulegum vinningum og var þetta langbesti kafli bandaríska liðsins í Ryder bikarnum hingað til .

Eftir að Collin Morikawa og Sam Burns unnu opnunarleik fjórboltans síðdegis fyrir Bandaríkjamenn, náðu Homa & Harman í annað heila stigið í bráðabana gegn Tommy Fleetwood og Nicolai Hojgaard.

Samandgregið var niðurstaðan úr laugardagsfjórboltanum e.h. eftirfarandi:

Lið Evrópu                                  Lið Bandaríkjanna          Skor
Hovland/Aberg                         Burns/Morikawa        4 & 3
Fleetwood/Hojgaard               Homa/Harman            2 & 1
Rose/MacIntyre                   Thomas/Spieth                3 & 2
Fitzpatrick/McIlroy                 Cantlay/Clark                1 Up.    (Sigurtvíeyki feitletruð)

Eins og áður segir eru sunnudagstvímenningarnir eftir.

Orkan verður að vera komin þá,“ sagði Morikawa í viðtali. „Við vitum að það verða 12 stig [á sunnudaginn]. Við eigum enn möguleika. Það eru alltaf möguleikar. Vitanlega verður þetta erfitt og það er barátta upp brattann. En sjáðu, hvert og eitt okkar verður að takast á við það sem við höfum fyrir framan okkur, og það verður áætlun okkar [sunnudag], og það er að finna leið til að setja mikið af rauðum vinningskorum á skortöfluna.

Lið Evrópu þarf aðeins 4 sigra í 12 leikjum eða eitthvað sambland af sigrum og að halda jöfnu. Sem stendur stefnir allt í sigur liðs Evrópu.  En hvað verður vitum við aðeins síðdegis í dag!!! Spennandi sunnudagur framundan!!!