Ragnheiður Jónsdóttir | september. 5. 2018 | 18:00

Ryder Cup 2018: Kuchar, Duval og Johnson varafyrirliðar Furyk

Þar sem Tiger Woods og Phil Mickelson verða leikmenn eftir að Jim Furyk valdi þá í lið Bandaríkjanna í Rydernum, þá varð að velja aðra varafyrirliða.

Þeir sem verða varafyrirliðar í liði Bandaríkjanna í Ryder bikarnum 2018 eru: Matt Kuchar, Zach Johnson og David Duval.

Duval sagðist vera sjokkeraður en jafnframt væri þetta mikill heiður fyrir hann, þegar hann frétti um val sitt í varafyrir- liðastöðu í liði Bandaríkjanna á Rydernum. Hann var í liði Bandaríkjanna, sem vann Ryder Cup 1999.

Kuchar og Johnson höfðu nú fremur gert sér vonir um að vera leikmenn en varafyrirliðar; Kucher í 5. sinn í röð, en útnefning hans sem varafyrirliða batt enda á þær væntingar.

Johnson komst sjálfkrafa í liðið fyrir 2 árum en varð í 20. sæti á stigalistanum nú og verður að gera sér að góðu varafyrirliðastöðuna.

Þremenningarnir munu vera, ásamt Davis Love III og Steve Stricker ráðgjafar fyrirliðans Jim Furyk.