Ragnheiður Jónsdóttir | september. 14. 2016 | 10:30

Ryder Cup 2016: Bubba líklega ekki með

Davis Love III, fyrirliði liðs Bandaríkjanna í Rydernum þarf að velja 4 leikmenn í lið sitt (en þessir 4 leikmenn nefnast „wildcards“ á ensku).

Auk þeirra eiga sæti í Ryder liði Bandaríkjanna 8 stigahæstu leikmenn á Ryder bikars stigalistanum.

Sl. mánudag 12. september 2016 tilkynnti Love um 3 leikmenn sem verða í bandaríska Ryder bikarsliðinu en það eru: Rickie Fowler, Matt Kuchar og JB Holmes.

Tilkynnt verður um fjórða og síðasta leikmann Ryder bikars liðs Bandaríkjanna eftir tvær vikur, en ljóst virðist af svörum Love á blaðamanafundi að Bubba Watson, sem er nr. 7 á heimslistanum og nr. 9 á Ryder bikars stigalistanum verði ekki með í liðinu.

Love var m.a. spurður af hverju Bubba hefði ekki verið valinn (strax og væri því meðal þessara 3 sem tilkynnt var um að yrðu í liðnu) og hvað hann þyrfti eiginlega að gera á Tour Championship til þess að öðlast síðasta sætið í liðinu.

Af svari Love má ráða að það skipti ekki svo miklu hver sigri á Tour Championship; hann muni ráðfæra sig við hina 11 leikmenn liðsins og í sameiningu verði tekin ákvörðun um hver passi best inn í liðið að 2 vikum liðnum.

Oft hefir verið gefið í skyn að Bubba sé ekkert allt of vinsæll meðal félaga sinna á PGA Tour og því virðist svar Love benda til þess að fyrirfram hafi verið tekin ákvörðun um að Bubba verði ekki val hans.

Eins er 3-8-0 Ryder bikars ferill Bubba ekkert of glæsilegur.

Bubba er sleggja og Love sagði m.a. á blaðamannafundinum að sleggna væri ekki endilega þörf á Hazeltine þar sem Ryderinn fer fram í ár.

Jafnframt er Bubba orðinn 37 ára og telst  í golfinu í dag ekki meðal ungra leikmanna, en líklegt má telja að Love III vilji gefa ungum og metnaðarfullum kylfingi sjéns, til þess m.a. að byggja upp framtíðarlið Bandaríkjamanna í Rydernum.