Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2016 | 07:00

Ryder Cup 2016: Bandaríkin 17 – Evrópa 11 – Hápunktar tvímenningsleikja 3. dags – Myndskeið!

Lið Bandaríkjanna sigraði lið Evrópu í Ryder bikarnum í gær sunnudaginn 2. október 2016 eftir að niðurstöður í tvímenningsleikjunum lágu ljósar fyrir.

Lið Evrópu hefði þurft 8 sigra í 12 leikjum – sem var nánast útilokað miðað við hvernig sveit Bandaríkjanna var skipuð.

Tvímenningsleikirnir fóru þannig að Bandaríkjamenn unnu 7 1/2 leik en keppendur f.h. Evrópu 4 1/2 leiki.

Ef 7 1/2 vinningur hefði fallið Evrópu megin þá hefði Ryder bikarinn komið aftur til Evrópu. En svo fór sem fór. Hefndin verður grimmileg í Evrópu eftir 2 ár!!! 2018

F.h. Evrópu unnu leiki sína nýliðinn Thomas Pieters, Martin Kaymer, Rafa Cabrera Bello og Henrik Stenson en féll á jöfnu í einum tvímenningsleikjanna; leik Sergio Garcia og Phil Mickelson.

Sjá má úrslitin í einstökum tvímenningsleikjum með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má hápunkta tvimenningsleikjanna í Ryder bikarnum í meðfylgjandi myndskeiði SMELLIÐ HÉR: