Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2015 | 07:45

Ruud Gullit: „Chelsea er eins og Tiger“

Ruud Gullit hefir líkt hruni enska fótboltaliðsins Chelsea undir Jose Mourinho við fall Tiger Woods í golfinu og segir ensku meistarana hafa misst hræðslufaktor sinn.

Menn Mourinho töpuðu sem allir vita, sem fylgjast með enska boltanum, 1-0 fyrir Stoke City á laugardaginn  og var þetta 7. ósigur þeirra þetta keppnistímabilið og er Chelsea nú í 16. sæti á stigatöflunni aðeins 3 stigum frá því efsta í 3 botnsætinu eða m.ö.o. í 5. neðsta sætinu. Niðurlægjandi!!!

Tiger hefir ekki sigrað á risamóti frá árinu 2008 eða í 7 ár, þó hann hafi unnið 14 risamót og Gullit trúir því að fall hans sé sambærilegt Chelsea á þessu keppnistímabili.

Þetta er eins og hjá Tiger Woods,“ sagði Hollendingurinn (Gullit) og fyrrum stjóri Blues við Sky Sports News „Í upphafi vissu allir sem stóðu með Tiger Woods að hann var búinn að tapa. Nú líta menn á hann og Chelsea og hugsa með sér: „Við getum unnið þá.““

Næsti leikur Chelsea í Premier League er gegn Norwich City á Stamford Bridge.  Tekst Celsea þá loks að ná fyrsta sigri sínum eftir 7 töp?