Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 14. 2016 | 20:30

Rose vann Ólympíugullið!!!

Enski kylfingurinn Justin Rose varð fyrsti Ólympíumeistarinn í golfi í dag síðan 1904, eftir að hann hafði betur í hörkuúrslitaviðureign gegn Henrik Stenson frá Svíþjóð á Ólympíugolfvellinum í Ríó, nú í dag 14. ágúst 2016.

Rose, 36 ára, var jafn Stenson á samtals 15 undir pari eftir 17 holu leik á lokahringnum en Stenson fékk skolla á 18. meðan Rose sökkti fuglapútti og vann með 2 högga mun.

Samtals lék Rose lokahringinn á 4 undir pari, 67 höggum og var á samtals 16 undir pari.

Stenson (68) hlaut silfrið og Bandaríkjamaðurinn Matt Kuchar bronsið eftir frábæran lokahring upp á 63 högg, þar sem hann var samtals á 13 undir pari.

Tilfinningin var betri en við nokkuð sem ég hef nokkru sinni unnið.  Þetta er besta mótið sem ég hef nokkru sinni tekið þátt í,“ sagði Rose eftir sigurinn á Ólympíuleikunum.

Vonandi höfum við sínt Brasilíubúum um hvað golf snýst.  Ég er glaður yfir hvað þetta var hnífjafnt. Ekki reyndar fyrir taugarnar á mér. Fyrir golfið!“