Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2013 | 14:30

Rory:„Einkalíf mitt er mitt einkamál“

Rory McIlroy er nú staddur í Suður-Kóreu þar sem hann mun hefja leik nú á fimmtudaginn í Opna kóreanska, eftir nokkurt hlé frá golfleik.

Á blaðamannafundi var hann beðinn um að tjá sig um mál málanna þessa viku hvort hann og Caroline Wozniacki séu hætt saman.

Hann svaraði: „Einkalíf mitt er mitt einkamál“ og neitaði að tjá sig meir um málið.

Hvað varðaði pælingar í þá átt að slæmt gengi hans á árinu hefði með skiptin yfir í Nike kylfur að gera, þá vísaði hann þeim á bug.

Hér má sjá Rory á blaðamannafundinum SMELLIÐ HÉR: