Rory tekur þátt í Opna írska
Rory McIlroy hefir staðfest þátttöku sína í Opna írska, sem fram fer í Cork í júní 2014.
Rory er sá síðasti sem boðar þátttöku sína en áður hafa Padraig Harrington, Graeme McDowell og Darren Clarke, staðfest þátttöku, sem þýðir að allir risamótstitilhafar Írlands taka þátt í mótinu.
Fyrirliði evrópska Ryder Cup liðsins Paul McGinley, Shane Lowry, Michael Hoey og John Daly munu einnig taka þátt í mótinu, sem nú fer fram á Fota Island.
„Ég hef aldrei komið á Fota,“ sagði Rory, sem nú nýlega féll í 11. sæti heimslistans.
„Reyndar hef ég aldrei almennilega komið til Cork – þannig að ég þekki svæðið ekkert of vel, en ég veit að Opna írska tókst vel þegar það hefir farið fram þar áður.“
„Þetta ætti að vera góður mótsstaður aftur og það er frábært að þeir færa Opna írska til. Opna írska er stór partur af Evrópumótaröðinni og þannig hefir það verið í langan tíma, þannig að það er mikilvægt að það haldi áfram og ég vildi stuðnla að því eins mikið og ég get.“
„Þetta er í vikunni á eftir Opna bandaríska, þannig að ég myndi elska að fá nokkra alþjóðlega kylfinga á mótið, en mótið er sterkt í sjálfu sér og það er frábært að allir risamótshafar Írlands styðja það aftur.“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
