Rory stefnir á risatitil
Eftir að Jordan Spieth sigraði á Opna bandaríska er Rory að tala í sig sigur á Opna breska.
Og áhangendur hafa ekki heyrt slíkt tal frá því að Jack Nicklaus og Tom Watson voru að keppast í næstum hverri viku á hátindi ferla þeirra eða þegar Nick Faldo og Seve Ballesteros voru að keppast um risatitlana.
Tiger var á toppnum í 15 ár en nú eru það Rory og Jordan Spieth sem eru risatitilshafar og sem stendur er Rory undir eftir að Spieth vann bæði Masters og Opna bandaríska í ár. Spieth hefir tækifæri á að verða fyrsti leikmaðurinn frá Ben Hogan 1953 til þess að sigra 3 risatitla á einu ári.
Hann sagði: „Við förum til St. Andrews í leit að Claret Jug og ég trúi því að það sé hægt að finna hann ef undirbúningurinn er réttur,“ saðgi hann.
Rory ætlar að svara fyrir sig á Opna breska.
Honum finnst skor sitt upp á 66 s.l. sunnudag á lokahring Opna bandaríska vera merki þess að eftir 2 mánaða skrikkjótt gengi þá væri hann nálægt sínu besta aftur.
„Þetta boðar gott fyrir restina af sumrinu hvernig ég hitti boltann,“ sagði Rory. „Nú hef ég nokkrar vikur til þess að vinna í púttunum mínum og komast í það form sem ég var í, sérstaklega s.l. sumar. Ef ég get gert það og haldið langa spilinu eins og það er þá er ég virkilega spenntur hvað gerist í sumar.“
„Langa spilið mitt er í virkilega góðu standi. Ég hef aldrei hitt boltann eins vel í risamóti í fjórum hringjum eins og hér í Chambers Bay. Ég var virkilega vel innstilltur alla vikuna og með sjálfstraustið í lagi. Og ef ég get aðeins púttað aðeins betur og fengið fleiri til að detta og fengið sjálfstraust varðandi það þá sé ég ekkert nema jákvætt gerast á næstu mánuðum.„
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
