
Rory segist spila upp á titla ekki peninga – ánægður með nýja Nike dræverinn
Í gær var tilkynnt um auglýsingasamning Nike við Rory McIlroy, sem talinn er $150-250 milljóna virði. Ekkert hefir verið gefið upp um skilmála samningsins og því er allt tal, m.a. um fjárhæðir, getgátur. The Irish Independent (sem oft hefir flutt áreiðanlegar fréttir af Rory) segir fjárhæðina vera $250 milljónir, samningstímann til 10 ára, en getur ekki heimilda…. Og allt í einu, eins og hendi sé veifað eru flestallir fjölmiðlar í dag á því að Rory sé að fá $250 milljónir (um 30 milljarða íslenskra króna) næstu 10 ár.
Á blaðamannafundi sem haldinn var í gær sagði Rory m.a.:
„Ég spila upp á titla, ekki peninga… ef ég er ekki búinn að vinna risatitil í lok árs 2013, þá er ég vonsvikinn.“
Og síðan sagði Rory einnig:
„Nýi drævinn sem ég spila með í þessari viku er frábær. Um leið og ég sló með honum, vissi ég að hann færi í pokann. Ég slæ lengra – ég hélt að ég væri að slá langt hér áður, en hann tekur leik minn á alveg nýtt stig!“
Nike græðir á samningsgerðinni við besta kylfing heims (Rory). Í gær kl. 10:15 a.m. á New York tíma fóru hlutabréf Nike upp um 18 cent í $53.28 og því er spáð að þau eigi eftir að hækka ennfrekar.
- janúar. 28. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (4/2023)
- janúar. 27. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2023
- janúar. 26. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bjarni Benediktsson – 26. janúar 2023
- janúar. 25. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sjöfn Har, Heimir Hjartarson, Svandís Thorvalds og Brynja Sigurðardóttir – 25. janúar 2023
- janúar. 24. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingunn Einarsdóttir – 24. janúar 2023
- janúar. 23. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Yani Tseng ———– 23. janúar 2023
- janúar. 23. 2023 | 06:00 PGA: Xander Schauffele með fyrsta albatrossinn á ferlinum á AmEx Open
- janúar. 23. 2023 | 05:15 Hvað var í sigurpoka Brooke Henderson?
- janúar. 23. 2023 | 05:00 PGA: Rahm rúllaði upp AmEx Open
- janúar. 22. 2023 | 22:40 Champions: Stricker sigraði í Hawaii
- janúar. 22. 2023 | 22:30 LPGA: Sigur Brooke Henderson öruggur á Hilton Grand Vacations TOC!!!
- janúar. 22. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Sigurbjörn Sigfússon og Unnur Ólöf Halldórsdóttir – 22. janúar 2023
- janúar. 22. 2023 | 14:45 Evróputúrinn: Victor Perez sigraði á Abu Dhabi HSBC meistaramótinu
- janúar. 21. 2023 | 23:59 LPGA: Brooke Henderson leiðir á Hilton Grand Vacations TOC f. lokahringinn
- janúar. 21. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (3/2023)