Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2014 | 21:00

Rory heimsótti gömlu kærustuna

Rory McIlroy sannaði það fyrir sér nú á dögunum að það sé alveg hægt að vera vinur sinna fyrrverandi.

Fyrrum kærasta Rory til 6 ára, Holly, eignaðist nú á dögunum fyrsta barn sitt, son sem fengið hefir nafnið Max, með núverandi kærasta sínum Jeff Mason.

Rory heimsótti Holly og Max á sjúkrahúsið og kom færandi hendi.

Á Twitter tvítaði hann:

„Brought my little buddy Max his first pair of Nikes last night, Great seeing you guys!“

(Ég færði litla vini mínum Max fyrsta parið af Nike (golfskóm) í gær. Frábært að sjá ykkur!“

Rory setti með meðfylgjandi mynd af Max í fínu skónum.

Max í Nike

Max í Nike