Ragnheiður Jónsdóttir | september. 3. 2014 | 12:00

Rory gerir lítið úr einkaflugvél Jordan Spieth

Það er aðeins hægt að geta sér til hvað kylfingar voru að metast um á dögum Old Tom Morris (Sjá kynningu Golf 1 á Old Tom Morris með því aðSMELLA HÉR1: og með því að SMELLA HÉR 2:  og Willie Park Sr.  (Sjá kynningu Golf1 á Willie Park Sr. með því að SMELLA HÉR: ) .

Kannski það hafi verið hversu langt þeir slógu með „brassie„-unum sínum (gömul kylfa sem kemst næst því að vera 2-tré dagsins í dag)  eða hversu mörg tvíd-vesti hvor um sig átti.

Spólum fram til ársins 2014 en þá eru kylfingar að „tvíta“ og metast á um mun meiri verðmæti eins og t.a.m. eftirfarandi samskipti Rory McIlroy og Jordan Spieth er dæmi um:

Rory byrjaði. Hann tvítaði:  „@JordanSpieth need to get yourself a bigger plane youngster – glad to help“

(Lausleg íslensk þýðing: Jordan Spieth þú verður að fá þér stærri flugvél, unglingurinn minn – myndi glaður aðstoða þig við það.“)

Spieth svaraði: „ehhhh maybe when I’m your age“

(Lausleg íslensk þýðing: „ehhh kannski þegar ég er orðinn jafngamall og þú“)

Síðan blandaði Rickie Fowler sér í samskiptin: „you (virðist beint til Jordan Spieth)  have a few years until you catch us“

(Lausleg íslensk þýðing: þú hefur nokkur ár þar til þú nærð okkur.“)

Hér er metingurinn allt í góðu. Ev ætlunin hefði verið að gera virkilega lítið úr Spieth hefði Rory farið að tala um eitthvað mun persónulegra eða t.a.m. stærð auglýsingasamninga, sem hvor um sig er með.  Hér virðist tilgangurinn aðallega vera að gera „unganum“ ljóst hver sé eldri, virðulegri, ráðsettari og ríkari.