Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 16. 2014 | 19:00

Rory gefur £1 milljón til krabbameinsveikra barna

Nr. 10 á heimslistanum Rory McIlroy gaf £1 milljón (um 189 milljóna íslenskra króna) til krabbameinsveikra barna á Norður-Írlandi.

Gjöfin til the Northern Ireland Cancer Fund for Children (NICFC) mun verða greidd út á næstu 4 árum til styrktar rekstri Daisy Lodge í Newcastle, County Down, sem veitir fjölskyldum krabbameinsveikra barna frí frá umönnunarstörfum barna sina.

Peningastuðningurinn er veittur í gegnum  the Rory Foundation, sem hann setti á laggirnar 2013 til þess að styðja góðgerðarmál í þágu barna um allan heim.

Rory sagði m.a. við þetta tækifæri:

“Ég  var djúpt snortinn af heiðarleika, hugrekki og hlýju barnanna og ungmennanna þarna og tók þá þegar þá ákvörðun að auka stuðning minn við Cancer Fund for Children”.

Já, sumir þeirra allra bestu gefa tilbaka til samfélagsins og eru meðvitaðir um þjáningar annarra, sem sjúkir eru og fá ekki notið þeirrar gleði að spila golf eins og við hin!