Ragnar Már Garðarsson, GKG, sigraði glæsilega á 2. móti Unglingamótaraðar Arion banka. Hann var sá eini sem var á samtals skori undir pari eftir 2 keppnisdaga! Mynd: Golf 1 Ragnar Már og Guðrún Brá taka þátt í Duke of York – Ragnar Már í 8. sæti eftir 1. dag
Ragnar Már Garðarsson, GKG efnilegasti kylfingur Íslands 2012 og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, stigameistari GSÍ í stúlknaflokki taka þátt á The Duke of York Young Champions Trophy mótinu, sem stendur dagana 11. -13. september 2012.
Að þessu sinni fer mótið fram á mjög svo sögufrægum slóðum í Skotlandi í Royal Troon Golf Club í Ayshire.
Ragnar Már átti frábæran hring í dag – lék á 5 yfir pari, 76 höggum. Það sem var einkar glæsilegt voru fyrri 9 hjá Ragnari en þá spilaði Ragnar á 31 höggi, fékk örn (á par-5 4. brautina) og 3 fugla (á 6.; 7. og 9. braut). Seinni 9 gengu ekki eins vel þar fékk Ragnar Már aðeins 1 fugl en jafnframt 4 skolla, 1 skramba og 1 snjókerlingu þ.e. á erfiðustu braut Royal Troon par-4, 11. brautina, sem reynst hefir mörgum erfiður ljár í þúfu. Ragnar er í 8. sæti, sem hann deilir með Linneu Strom frá Svíþjóð.
Guðrún Brá var á 11 yfir pari, 83 höggum, en hún var með 6 skolla, 1 þrefaldan skolla og 1 skramba. Eftir 1. mótsdag er Guðrún Brá í 37. sæti, sem hún deilir með 4 öðrum kylfingum.
Golf 1 óskar þeim Ragnari Má og Guðrúnu Brá góðs gengis á morgun!
Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á The Duke of York Young Champions Trophy SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

