
Ragnar Már í 7. sæti og Guðrún Brá í 32. sæti á Duke of York eftir 2. dag
Ragnar Már Garðarsson, GKG efnilegasti kylfingur Íslands 2012 og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, stigameistari GSÍ í stúlknaflokki taka þessa dagana þátt í The Duke of York Young Champions Trophy. Mótið stendur dagana 11. -13. september 2012.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK. Mynd: gsimyndir.net
Leikið er á golfvelli Royal Troon Golf Club í Ayshire, Skotlandi.
Ragnar Már er samtals búinn að spila á 153 höggum (76 77) og deilir sem stendur 7. sætinu, með nokkrum öðrum kylfingum.
Guðrún Brá bætti sig um 5 högg frá því í gær og fór upp um 5 sæti; þ.e. hún er búin að spila á samtals 161 höggi (83 78) og deilir 32. sætinu með nokkrum öðrum.
Golf 1 óskar þeim Ragnari Má og Guðrúnu Brá góðs gengis á morgun!
Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á The Duke of York Young Champions Trophy SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024