Ragnar Már Garðarsson, GKG, sigraði glæsilega á 2. móti Unglingamótaraðar Arion banka. Hann var sá eini sem var á samtals skori undir pari eftir 2 keppnisdaga! Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 20. 2012 | 16:20

Ragnar Már á 4 undir pari eftir 1. dag!!! – Íslenska landsliðið undir 18 ára í 4. sæti á European Boys Challenge Trophy

Íslenska piltalandsliðið undir 18 ára tekur nú þátt í undankeppni Evrópumóts unglinga – European Boys Challenge Trophy.

Mótið fer fram í St. Sofia Golf & Spa, í Búlgaríu og stendur dagana 20.-22. september.

Það er sambærilegt því móti sem haldið var á Hvaleyrinni í sumar, nema nú eru keppendur 18 ára og yngri.

Íslenska landsliðið verður að ná einu af 3 efstu sætunum til þess að komast á sjálft Evrópumótið.

Eftir daginn í dag er íslenska landsliðið í 4. sæti. Það er skipað þeim: Ragnari Má Garðarssyni, GKG (sem spilaði á 4 undir pari í dag, 67 höggum!!!) – Bjarka Péturssyni, GB (sem spilaði á 1 undir pari í dag, 70 höggum!!!) Gísla Sveinbergssyni, GR (sem spilaði á parinu, 71 höggi )- Birgi Birni Magnússyni, GK (sem spilaði á 1 yfir pari, 72 höggum ); Ísak Jasonarsyni, GK (sem spilaði á 8 yfir pari, 79 höggum) og Emil Þór Ragnarssyni, GKG (sem spilaði á 11 yfir pari í dag, 82 höggum).

Lið Belgíu og Danmerkur eru efst á 352 höggum og í 3. sæti er lið Sviss 1 höggi á eftir á samtals 353 höggum.  Eins og áður sagði er íslenska landsliðið í 4. sæti á samtals 359 höggum (en 5 bestu skor af 6 telja).

Golf 1 óskar þeim Emil Þór, Ísak, Birgi Birni, Gísla, Bjarka og Ragnari Má góðs gengis á morgun!!!

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. hring SMELLIÐ HÉR: