Þórður Rafn
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2017 | 19:00

Pro Golf Tour: Þórður lauk keppni í 45. sæti

Þórður Rafn Gissurarson, atvinnukylfingur úr GR, tók þátt á Opna Royal Golf Anfa Mohammedia 2017 mótinu, sem fór fram 8.-10. mars og lauk í dag.

Mótið var hluti af þýsku Pro Golf mótaröðinni og fór mótið fram í Marokkó.

Þórður lék á samtals 5 yfir pari, 218 höggum (72 72 74) og hafnaði í 45. sæti.

Sigurvegari varð Þjóðverjinn Max Schmitt en hann lék á samtals 14 undir pari.

Sjá má lokastöðunni á Opna Royal Golf Anfa Mohammedia 2017 mótinu með því að SMELLA HÉR: