Þórður Rafn Gissurarson, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 14. 2017 | 23:00

Pro Golf Tour: Þórður Rafn varð í 2. sæti á Austerlitz Classic mótinu – Stórglæsilegt!!!

Þórður Rafn Gissurarson, atvinnukylfingur úr GR, tók þátt í Austerlitz Classic mótinu sem er hluti af þýsku Pro Golf mótaröðinni.

Mótið fór fram dagana 12.-14. júní 2017 á Austerlitz golfstaðnum í Tékklandi og lauk því í dag.

Þórður Rafn lék samtals á 11 undir pari, 205 höggum (67 71 67).

Á 3. og lokahringnum var Þórður Rafn á glæsilegu skori, 5 undir pari, 67 höggum; fékk 7 fugla, 9 pör og 2 skolla.

Það var Þjóðverinn Maximilian Walz, sem sigraði á 12 undir pari, aðeins 1 höggi betri en Þórður Rafn.

Til þess að sjá lokastöðuna á Austerlitz Classic mótinu SMELLIÐ HÉR: