Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2016 | 18:00

Pro Golf Tour: Þórður Rafn í 9. sæti e. 2. dag Sparkassen Open

Íslandsmeistarinn í höggleik 2015, Þórður Rafn Gissurarson, GR,  er enn með í baráttunni um efstu sætin á Sparkassen Open atvinnumótinu á ProGolf mótaröðinni.

Þórður Rafn lék á 68 höggum í dag eða -4 og er hann samtals á -9 eftir fyrstu tvo keppnisdagana af alls þremur.

GR-ingurinn er í 9. sæti fyrir lokahringinn í Bochumer Golfclub í Þýskalandi.

Frakkinn Kenny Subregis er efstur á -13 samtals.

Sjá má stöðuna á Sparkassen Open með því að SMELLA HÉR: