Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2017 | 20:00

Pro Golf: Þórður Rafn T-12 e. 2. dag í Marokkó

Þórður Rafn Gissurarson, atvinnukylfingur úr GR, tekur þátt í Opna Madaef 2017 mótinu, sem er hluti af þýsku Pro Golf mótaröðinni.

Mótið fer fram á Pullman El Jadida Royal golfvellinum í Casablanca, Marokkó.

Þórður Rafn flaug í gegnum niðurskurða á 2. keppnisdegi og spilar því á morgun 3. hringinn.

Þórður Rafn hefir spilað á samtals 5 yfir pari, 149 höggum (75 74) og er jafn 4 öðrum kylfingum í 12. sæti mótsins.

Til þess að sjá stöðuna á Opna Madaef 2017 mótinu SMELLIÐ HÉR: