Þórður Rafn Gissurarson, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 2. 2017 | 18:00

Pro Golf: Þórður Rafn á 74 á 1. degi

Þórður Rafn Gissurarson, atvinnukylfingur úr GR, hóf í dag leik á EXTEC Pro Golf Tour by Czech One Livescoring.

Mótið fer fram á Ypsilon golfstaðnum, í Liberec, Tékklandi, dagana 2.-4. maí 2017.

Á 1. degi lék Þórður Rafn á 2 yfir pari, 74 höggum – fékk 2 fugla, 2 skolla og einn tvöfaldan skolla.

Hann er T-65, þ.e. deilir 65. sætinu með 17 öðrum kylfingum.

Í efsta sæti eftir 1. dag er Þjóðverjinn Maximilian Walz, en hann lék á 5 undir pari, 67 höggum.

Til þess að sjá stöðuna á EXTEC Pro Golf Tour by Czech One Livescoring SMELLIÐ HÉR: