Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2017 | 07:00

Pro Golf: Þórður Rafn á 72 e. 1. dag á Amstal Open

Þórður Rafn Gissurarson, atvinnukylfingur úr GR, tekur þátt í Adamstal Open 2017 powered by EURAM Bank AG mótinu, sem fram fer í Austurríki og stendur dagana 29.-31. maí 2017.

Mótið er hluti af þýsku Pro Golf mótaröðinni.

Þórður Rafn lék 1 hring á 2 yfir pari, 72 höggum.

Skorkortið hans var ansi litríkt; hann fékk 1 örn, 3 fugla en því miður líka 7 skolla!

Sjá má stöðuna á Amstal Open með því að SMELLA HÉR

… en þess má geta að Þórður Rafn fór út 12:20 að staðartíma í Austurríki í dag til að spila 2. hring (þ.e. kl. 10:20 að staðartíma hér heima á Íslandi).