Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 1. 2013 | 20:00

Pressel og Lennarth leiða eftir 1.dag Opna breska

Það eru bandaríski kylfingurinn Morgan Pressel og sænski kylfingurinn Camilla Lennarth sem leiða eftir 1. dag Opna breska kvenrisamótsins, sem hófst í dag.

Camilla Lennarth

Camilla Lennarth

Þær báðar léku Old Course á St. Andrews í Skotlandi á 6 undir pari 66 höggum, hvorar.

Camilla Lennarth er e.t.v. ekki eins þekkt nafn og Pressel, en hún er nýliði á Evrópumótaröðinni og má sjá kynningu Golf1 á henni með því að SMELLA HÉR: 

Þriðja sætinu deila 7 kylfingar, allar á 5 undir pari, 67 höggum en þeirra á meðal eru NY Choi og fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslistanum, Stacy Lewis.

Tíunda sætinu deila aðrir 7 kylfingar allar á 4 undir pari, en þeirra á meðal er m.a. Paula Creamer.

Það er ekki fyrr en í 18. sæti sem við sjáum þann kylfing sem er að reyna við 4 risamóta Grand Slam – Inbee Park – en hún deilir því sæti með 19 öðrum.

Grand Slamarinn okkar er því meðal 38 efstu kylfinga og aðeins munar 3 höggum á þeirri í 38. sætinu og 1. sætinu.

Til þess að sjá stöðuna á Opna breska kvenrisamótinu SMELLIÐ HÉR: