Ian Poulter í Rydernum 2012 – Ógleymanlegur!!!
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2016 | 09:20

Poulter varafyrirliði Evrópu í Ryder Cup

Þær fréttir bárust í síðustu viku að Ian Poulter verði ekki í Ryder bikars liði Evrópu vegna fótarmeiðsla – Sjá m.a. frétt Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR: 

Þetta eru mikil vonbrigði fyrir aðdáendur Ryder bikarsins – því árangur Poulter í Rydernum er framúrskarandi 12-4-2.

En nú verður Poulter með þó með öðrum hætti sé.

Poulter hefir verið valinn varafyrirliði Ryder bikars liðs Evrópu og mun verða einn af 4 slíkum; hinir eru:  Pádraig Harrington, Thomas Bjorn og Paul Lawrie. 

Björn og Poulter voru í 2014 Ryder Cup liðinu í Gleneagles.

Lawrie var með í kraftaverkinu í Medinah 2012 og Harrington hefir spilað í 5 Ryderum þ.e. frá  1999 til 2008.

[Ian] færir liðinu mikla orku,“ sagði Luke Donald. „Það er alltaf gott að vera í kringum hann. Hann hefir þessa góðu orku sem þarf til þess að koma hlutm í verk og sama hvað fólki líkar við það.“