Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 25. 2013 | 16:30

Gary Player situr fyrir nakinn

Golfgoðsögnin Gary Player mun sitja nakinn fyrir í Body Issue ESPN og verður þar með elsti íþróttamaðurinn til þess að hafa setið fyrir nakinn hjá því kunna blaði, eða 77 ára.

Áður hafa birtst myndir af Gary Player fáklæddum  í ræktinni hér á yngri árum

Áður hafa birtst myndir af Gary Player fáklæddum í ræktinni hér á yngri árum

Player hefir löngum lagt mikla rækt við líkama sinn, löngu áður en kylfingar voru farnir að sjá mikilvægi þess að vera í ræktinni og stunda þolíþróttir jafnhliða golfinu og eins passaði hann alltaf upp á að borða hollan mat.

Aðrir íþróttamenn sem verða í Body Issue 2013 eru m.a. Colin Kaepernick, bandarískur ruðningsboltakappi fyrir San Francisco og blakmeistarinnn Kerri Walsh Jennings, en teknar voru myndir af henni fyrir og eftir að hún átti barn sitt.

Enn aðrir íþróttamenn sem sitja fyrir naktir eru Vernon Davis; John Wall og Kenneth Faried úr NBA; Matt Harvey og Giancarlo Stanton úr hafnarboltanum bandaríska; tennisstjarnan Agnieszka Radwanska og fótboltamaðurinn  John Isner; sem spilar með Sydney Leroux.

Af framangreindri upptalningu sést að Player er langkunnasta nafnið af öllum sem myndaðir verða.

Þetta verður 5. útgáfa „Body Issue“ og kemur út 12. júlí n.k.

Ritstjóri ESPN The Magazine Chad Milliman sagði að íþróttamennirnir væru „stoltir af vinnu þeirri sem þeir hefðu lagt í að verða sterkir og kraftmiklir og ESPN væri stolt af því að ná því á filmu.“

Meðal kylfinga sem setið hafa fyrir undanfarin 4 ár eru hjá ESPN The Body Issue eru: Suzann Pettersen (2012), Belen Mozo (2011), Camilo Villegas (2010), Sandra Gal, Anna Grezebien og Christina Kim (2009).