Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2021 | 01:00

PGA: Van Rooyen sigraði á Barracuda

Það var hinn s-afríski Eric Van Rooyen, sem vann fyrsta PGA Tour titil sinn, á móti vikunnar á PGA Tour, Barracuda meistaramótinu.

Mótið fór fram í Truckee, Californíu dagana 5.-8. ágúst 2021.

Sigurskor van Rooyen voru 50 stig en keppt var eftir Stableford kerfi þar sem

Albatross gaf 8 stig
Örn gaf 5 stig
Fugl gaf 2 stig
Par gaf  0 stig
Skolli gaf  -1 stig
Tvöfaldur skill gaf: -3 stig

Eric Van Royen er fæddur 21. febrúar 1990 í Bellville, S-Afríku og því 31 árs. Þetta er 4 atvinnumannssigur hans á ferlinum og eins og segir sá fyrsti á PGA Tour. Fyrir á hann sigra á Sólskinstúrnum, Evróputúrnum og Áskorendamótaröðinni bandarísku (Challenge Tour).

Sjá má lokastöðuna á Barracuda Championship með því að SMELLA HÉR: