Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2017 | 07:00

PGA: Tiger staðfestir þátttöku sína í 3 PGA Tour mótum

Tiger Woods staðfesti í gær þátttöku sína á 3 PGA Tour mótum.

Þetta eru:  the Farmers Insurance Open, sem fram fer 26.-29. janúar í San Diego; Genesis Open, sem fram fer 16.-19. febrúar í  Pacific Palisades,Kaliforníu og  The Honda Classic sem fram fer 23.-26. febrúar í Palm Beach Gardens, Flórída.

Tiger er nú 41 árs og nr. 652 á heimslistanum.

Hann hefir, ef Hero World Challenge er undanskilið, sem hann spilaði í, í síðasta mánuði og hann var sjálfur gestgjafi í (og var með ágætis skor í 73-65-70-76), ekki spilað opinberlega í PGA móti frá því í ágúst 2015, þ.e. í Wyndham Championship

Eiginlega var Tiger búinn að hálfstaðfesta þátttöku í Genesis Open 13. desember s.l. en þá sagði hann m.a.:

Ég er mjög spenntur fyrir að koma aftur á Riviera og keppa á Genesis Open. Það er þar sem allt byrjaði. Þetta var fyrsta PGA Tour mótið mitt. Ég var 16 ára og vóg u.þ.b. 105 pund (48 kg?). Í einum vettvangi breyttist líf mitt.“

Tiger er langt frá því að jafna risamótamet Jack Nicklaus, en hann er bara á höttunum eftir sigri. Hann hefir ekki lyft sigurbikar í meira en 40 mánuði. Síðast sigraði Tiger 2013 í  World Golf Championships/Bridgestone Invitational.

Umboðsmaður Tiger, Mark Steinberg, virtist vera að gefa í skyn að Tiger kynni e.t.v. einnig að  spila í Omega Dubai Desert Classic, skv. Golf Digest.