Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2016 | 04:00

PGA: Spieth sigraði á TOC

Það var nr. 1 á heimslistanum, Jordan Spieth, sem bar höfuð og herðar yfir keppinauta sína og sigraði á fyrsta móti ársins 2016 á PGA Tour, móti meistaranna eða Hyundai Tournament of Champions eins og mótið heitir á ensku og er oft skammstafað TOC.

Yfirburðir Spieth voru miklir; hann var á samtals skori upp á 30 undir pari!!!! þ.e. 262 höggum (66 64 65 67).

Spieth átti heil 8 högg á þann sem næstur kom, en það var Patrick Reed, en hann lék á samtals 22 undir pari, 270 höggum (65 69 67 69).

Þriðja sætinu deildu síðan Brooks Koepka og Brandt Snedeker á samtals 21 undir pari, hvor og einn í 5. sæti varð Rickie Fowler á samtals 20 undir pari. Þessir 5 kylfingar voru þeir einu í mótinu sem allir leiku á heildarskori upp á 20 undir pari eða betur sem þýðir að meðaltali 5 undir pari upp á hvern hring og 7,5 undir pari hjá sigurvegaranum!!!  Og allir í 5 toppsætunum frá Bandaríkjunum.

Eins og einn íþróttafréttamaðurinn frá Hawaii sagði – það eru einfaldlega engin orð til að lýsa því hversu frábær Spieth er!!!

Til þess að sjá lokastöðuna á Hyundai Tournament of Champions að öðru leyti SMELLIÐ HÉR: