
PGA: Spieth sigraði á John Deere Classic!
Jordan Spieth, 19 ára, skrifaði sig í golfsögubækurnar fyrr í kvöld þegar hann sigraði í 3 manna bráðabana, sem fór á 5. holu.
Spieth er fyrsti táningurinn í 82 ára sögu PGA til að sigra í móti á mótaröðinni, en það gerðist síðast árið 1931. Hann kom sér í bráðabana eftir ævintýralegt fuglavipp á 18. flöt sem sjá má með því að SMELLA HÉR:
Þeir Jordan Spieth, Zach Johnson og David Hearn voru allir á samtals 19 undir pari, 265 höggum; Spieth (70 65 65 65); Johnson (64 66 67 68) og Hearn (66 66 64 69).
Það varð því að koma til bráðabana til þess að skera úr um sigurinn. Á fyrstu holu fengu allir par. (Par-4 18. holan spiluð). Á annarri holu (18. spiluð aftur) fór allt á sama veg. Á 3. holu bráðabanans var par-3 16. holan spiluð og enn fengu allir par. Á 4. holu var par-5 17. holan leikin og enn var allt jafnt – allir fengu par. Síðan var par-4 18. holan spiluð í 3. sinn og nú fengu Johnson og Hearn skolla og Spieth vann á pari!
Það var til mikils að vinna fyrir Spieth því með sigrinum fær hann fulla aðild að PGA mótaröðinni, hann fær að taka þátt í FedEx Cup umspilinu í haust og eins fær hann að spila í Opna breska risamótinu í Muirfield nú í vikunni!
Til þess að sjá úrslitin á John Deer Classic mótinu í Illinois SMELLIÐ HÉR:
Til þess að sjá hápunkta á 4. degi John Deer Classic mótinu SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024