Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2012 | 08:00

PGA: Spencer Levin efstur þegar WM Phoenix Open er frestað vegna myrkurs – hápunktar og högg 2. dags

Það er bandaríski kylfingurinn Spencer Levin, sem leiðir þegar 2. hring WM Phonix Open var frestað í nótt vegna myrkurs. Ákveðið hefir verið að hefja leik kl. 07:30 að staðartíma í Arizona (kl. 14:30 að íslenskum tíma). Alls spilaði Levin á -14 undir pari, 128 höggum (65 63).

Í 2. sæti með 3 holur eftir óloknar er Harrison Frazer á -11 undir pari.

Í 3. sæti eru síðan nýliðinn John Huh og Webb Simpson, sem átti frábæran dag og glæsileg vipphögg, sem valin voru högg þessa 2. dags. Báðir eru á samtals -8 undir pari, 134 höggum; Huh (68 66) og Simpson (65 69).

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á WM Phoenix Open smellið HÉR:

Til þess að sjá myndskeið af hápunktum 2. dags á WM Phoenix Open smellið HÉR:

Til þess að sjá myndskeið af höggum 2. dags á WM Phoenix Open, sem Webb Simpson átti, smellið HÉR: