Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 5. 2012 | 23:15

PGA: Singh efstur á Greenbrier eftir 1. dag – spilaði á 63 glæsihöggum!!!

Vijay Singh frá Fidji-eyjum er efstur eftir 1. dag á Greenbrier Classic.  Hann spilaði á 63 glæsihöggum – fékk 8 fugla og 1 skolla.  Hann átti frábæran kafla (á 15.-18. braut) þar sem hann fékk 4 fugla í röð.

í 2.-4. sæti eru 3 bandarískir kylfingar: Jeff Maggert, Martin Flores og Jonathan Byrd. Þeir eru allir 1 höggi á eftir Vijay, komu í hús á 64 höggum, hver.

Tiger Woods deilir 88. sætinu, er einn af 24 kylfingum sem spiluðu á 1 yfir pari.  Meðal þeirra sem deila sætinu með Tiger eru menn á borð við Jim Furyk, Camilo Villegas, Phil Mickelson og Dustin Johnson.

Til þess að sjá stöðuna á Greenbrier Classic eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR: