PGA: Sergio sættir sig við örlögin á 17.
Sergio Garcia yppti öxlum og sætti sig við örlögin eftir að horfa á eftir sigurmöguleikum sínum hverfa út í vindinn á næstsíðustu holu mótsins á The Players Championship í gær.
Garcia var svo sannarlega meðal þeirra sem áttu möguleika á sigri þegar hann mætti á 71. teig á TPC Sawgrass og var jafn þeim sem síðar vann mótið, Tiger Woods.
En eftir að hafa slegið í vatnið tvisvar á þessari 137 yarda (125 metra) löngu holu, varð hann að skrifa 7u á skorkortið á 17. holu, áður en hann bætti við 6u á 18. holu og lauk þannig keppni á 76 höggum, T-8, 6 höggum á eftir nr. 1 á heimslistanum (Tiger Woods).
Garcia sagði: „Þegar boltinn var í loftinu hugsaði ég, „gerðu það vertu nú í lagi, vegna þess að hann var beint á pinna. Hann var örugglega 3 fet (1 metra) til vinstri við holuna. Þegar hann lenti með „splashi“ í vatninu, hugsaði maður bara, vonandi slæ ég gott högg eftir þetta og næ 4 og ég á enn möguleika á næstu. Þannig að ég hugsaði bara ég ætla að slá sama högg aðeins fastar, sem ég gerði, en svolítill vindur náði tökum á boltanum og hann lenti aftur í vatninu. Næsta bolta sló ég svolítið fastar og hann lenti loks á flöt. Þetta pirrar mig ekkert. Þetta kemur fyrir.“
Aðspurður um álit sitt á 17. holu TPC Sawgrass sagði Garcia: „Ég hef verið heppinn á þeirri holu. Ég vann The Players Championship titilinn minn á þeirri holu.“
„Þessi hola hefir að mestu leyti verið mér góð. Í dag (gær) var hún það ekki. Það er bara eins og það er. Þetta er þannig hola. Manni þykir vænt um hana fyrir það sem hún er.“
Heimild: Sky Sports
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
