Russell Henley
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2014 | 11:00

PGA: Russell Henley efstur í hálfleik McGladrey Classic – Hápunktar 2. dags

Það er bandaríski kylfingurinn frábæri Russell Henley, sem er efstur í hálfleik á McGladrey Classic, sem fram fer á Seaside golfvellinum á Sea Island, Georgíu.

Henley er búinn á leika fyrstu tvo hringi mótsins á samtals 9 undir pari, 131 höggi (68 63).

Öðru sætinu deila 3 kylfingar: Andrew Svoboda, Brian Harman og Brendon de Jonge; allir aðeins 1 höggi á eftir Henley þ.e. á 8 undir pari, hver.

Will MacKenzie, Marc Wilson og argentínski kylfingurinn Fabian Gomez deila síðan 5. sætinu á 7 undir pari, hver.

Bandarísku kylfingarnir Scott Piercy og Kevin Chappell eru svo í 8.-9. sætinu á 6 undir pari, hver.

Aðeins munar því 3 höggum á kylfingum í 1. og 10. sæti og því von á skemmtilegri og jafnri keppni nú um helgina á McGladrey Classic.

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag McGladrey´s Classic SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá hápunkta 2. dags á McGladrey´s Classic SMELLIÐ HÉR: