Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2018 | 02:00

PGA: Rose tók FedExCup – Tiger sigraði á Tour Championship

Það var Tiger Woods sem sigraði á Tour Championship og er þetta fyrsti sigur Tiger frá 2013 og sá 80. á PGA Tour.

Nr. 1 á heimslistanum Justin Rose varð stigameistari þ.e. vann FedEx bikarinn eftirsótta og 10 milljón dollara bónus-pottinn, sem honum fylgir

Tiger lék lokahringinn á East Lake á 1 yfir pari, 71 höggi; fékk 2 fugla og 3 skolla.

Sigurskor Tiger var samtals 11 undir pari, 269 högg (65 68 65 71).

Í 2. sæti varð Billy Horschel 2 höggum á eftir Tiger á 9 undir pari, 271 höggi (71 65 69 66 ) og í 3. sæti varð Dustin Johnson á 7 undir pari, 273 höggum (69 70 67 67).

Það var tilfinningaþrunginn Tiger sem sagði eftirfarandi eftir sigurinn: „Það var á einum punkti sem ég var ekki viss um að ég myndi nokkru sinni gera þetta aftur.“ Hann átti við að spila golf ekki að sigra og hann viðurkenndi að hann hefði verið nærri því að tárast þegar hann gekk eftir 18. brautinni og kláraði Tour Championship, mót sem hann hefir nú sigrað í þrívegis, þ.e. 1999, 2007 og 2018.  Hann er eini kylfingurinn sem tekist hefir að sigra á Tour Championship þrívegis.

Fyrir sigurinn á Tour Championship 2018 hlaut Tiger $ 1,620,000.

Ljóst var að ef Tiger sigraði á Tour Championship yrði Justin Rose að landa  5. sætinu í mótinu eða gera betur til þess að tryggja sér stigmeistaratitlinn.

Rosy varð T-4 ásamt þeim Hideki Matsuyama og Webb Simpson en allir léku þeir á 6 undir pari, 274 höggum; Rosy (66 67 68 73); Matsuyama (72 66 71 65) og Simpson (69 70 68 67).

Þetta dugði til stigameistaratitils og varð Tiger Woods í 2. sæti á stigalistanum og Bryson DeChambeau í 3. sæti.

Rosy þurfti á fugli að halda á par-5 lokaholu East Lake til þess að ná að vera jafn þeim Matsuyama og Simpson í 4. sætinu og það tókst!!!

Sjá má lokastöðuna á Tour Championship með því að SMELLA HÉR: