Rickie Fowler
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2012 | 07:45

PGA: Rickie Fowler valinn kylfingur maímánaðar á PGA – myndskeið

Rickie Fowler hefir komið fram með alveg nýja tísku sem sjá má endurspeglast m.a. á golfvöllum hér á landi þar sem kylfingar klæðast skærlitum appelsínugulum, aquamarín, bleikum eða eplagrænum klæðnaði frá Puma, sem Rickie hefir verið að auglýsa.

Rickie Fowler

Vinsældir eru eitt – en það er ekki nóg að vera snoppufríður í fallegum fötum! Það var bara eitt sem þennan frábæra kylfing sem Rickie Fowler er skorti fram til skamms tíma, en það var að sigra á PGA móti.

Það gerðist nú í s.l. mánuði, nánar tiltekið 6. maí s.l. þegar Rickie sigraði á Wells Fargo mótinu, sem var fyrsti sigur hans á PGA.

Rickie Fowler

Það er því engin furða að hann skuli hafa verið valinn kylfingur maímánaðar á PGA.

Til þess að sjá myndskeið frá valinu á Rickie Fowler, sem kylfings maímánaðar  SMELLIÐ HÉR: