Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 18. 2021 | 23:00

PGA: Power sigurvegari á Barbasol

Það var Írinn Seamus Power, sem stóð uppi sem sigurvegari á móti vikunnar á PGA Tour, Barbasol Championship.

Hann varð að hafa fyrir sigrinum því hann var efstur og jafn JT Poston að loknu hefbundnu 72 holu spili og varð því að koma til bráðabana milli þeirra.

Power vann ekki í bráðabananum fyrr en á 6. holu.

Íslandsvinurinn indverski Anirban Lahiri og bandaríski kylfingurinn Sam Ryder deildu síðan 3. sætinu, á samtals 20 undir pari, hvor, 1 höggi frá því að koma sér í bráðabanann með þeim Power og Poston.

Sjá má lokastöðuna á Barbasol Open með því að SMELLA HÉR: